Nú byrjar bloggið
Komið þið öll sömul blessuð og sæl. Nú er mál til komið að vekja síðuna til lífsins. Eins og gefur að skilja hefur eitt og annað á daga mína drifið frá því í ágúst. Ágúst reyndist ekki svo skelfilegur mánuður eftir allt. Ég náði öllum prófunum og fékk mín námslán út á það. Haustið hefur farið í kennslu og baráttu hér í Hagaskóla Íslands. Tvö dónaleg haust eru komin á fullt skrið, ferðamálin eru í öruggum höndum mínum áfram, Sören orðinn viðskiptaráðunautur danska sendiráðsins í Chile og ég er á leið í framboð fyrir VG (skipa 17 sæti í RVK-kjördæmi suður)! Eftir því sem daginn lengir og snjóföl leggst yfir áður græna grundu birtir yfir öllu hér í höfuðborg dauðans. Kannski ég bloggi eitthvað á næstunni. Látið boðin berast... saludos de sigfuso